Lærðu að bregðast við drukknunarslysum.
Lærðu að veita lífbjargandi aðstoð í gegnum skyndihjálpamyndböndin okkar sem unnin voru í samstarfi við Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Þetta myndband hefur verið talsett Þórunn Lárusdóttir. Gakktu til liðs við okkur ef þú vilt vinna myndbönd með okkur.
Myndbandið var unnin í samstarfi við
Skyndihjálp:
Drukknunarslys
Í þessu myndbandi lærir þú að veita skyndihjálp í drukknunartilfellum.
Reyndu að ná einstaklingnum úr vatninu án þess að setja sjálfan þig í hættu.
Rétt viðbrögð eru háð ástandi einstaklingsins, tvær sviðsmyndir geta komið upp.
Sviðsmynd 1: Einstaklingurinn er með meðvitund
Sviðsmynd 1: Einstaklingurinn er með meðvitund.
1 - Þægileg staða
Hjálpaðu einstaklingnum í þægilega stöðu.
2 - Breiddu yfir einstaklinginn
Breiddu yfir hann og hjálpaðu honum í þurr föt.
3 - Hringdu á Neyðarlínuna 112
Hringdu á Neyðarlínuna 112 þar sem einstaklingur sem lendir í drukknunarslysi þarf ávallt að fara í læknisskoðun.
Sviðsmynd 2: Einstaklingurinn er meðvitundarlaus
Sviðsmynd 2: Einstaklingurinn er ekki meðvitund og svarar ekki áreiti.
1 - Meðvitund?
Veltu einstaklingnum á bakið.
2 - Öndun eðlileg?
Sveigðu höfuðið aftur til að hreinsa og opna öndunarveginn og meta öndun.
Ef þú sérð brjóstkassann ekki rísa og hníga og finnur eða heyrir ekki eðlilegan andardrátt andar einstaklingurinn ekki eðlilega.
3- Hringdu í Neyðarlínuna 112
Hringdu í Neyðarlínuna 112
4 - Viðbrögð í samræmi við ástand einstaklingsins
Reyndu að bregðast við í samræmi við ástand einstaklingsins.
Það þýðir, ef einstaklingurinn andar eðlilega, komdu honum fyrir í hliðarlegu.
Breiddu yfir einstaklinginn og fylgstu vel með ástandi hans þar til hjálp berst.
Ef einstaklingurinn andar ekki eðlilega, biddu einhvern annan að fara og sækja hjartastuðtæki.
Á meðan þú bíður eftir hjartastuðtækinu, byrjaðu endurlífgun með því að hnoða 30 sinnum og blása 2 sinnum til skiptis.
Ef þú kannt ekki eða villt ekki blása, skaltu framkvæma hjartahnoð á taktinum tvö hnoð á sekúndu.
Loading comments ...