Is this subtitle correct?

Skyndihjálp: Endurlífgun - Fullorðnir

228,621 views
Back to the program
Resources and description

Lærðu að beita endurlífgun ef fullorðinn einstaklingur fer í hjartastopp.

Þetta verkefni okkar, sem tileinkað er skyndihjálp, var unnið í samstarfi við Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Þetta myndband hefur verið talsett Þórunn Lárusdóttir. Gakktu til liðs við okkur ef þú vilt vinna myndbönd með okkur.

Loading comments ...

Myndbandið var unnin í samstarfi við

Skyndihjálp

Endurlífgun Fullorðnir

Í þessu myndbandi lærir þú að framkvæma endurlífgun eftir hjartastopp hjá fullorðnum.

Skyndihjálp:

1 - Meðvitund?

Ef einstaklingur missir meðvitund og svarar ekki áreiti, hringdu í Neyðarlínuna 112.

Veltu viðkomandi á bakið.

2 – Eðlileg öndun?

Kannaðu hvort að einstaklingurinn andar eðlilega með því að leggja aðra höndina á ennið og fingurgóma hinnar handarinnar undir hökuna

Hallaðu höfðinu varlega aftur og lyftu hökunni til að opna öndunarveginn.

Ef þú sérð brjóstkassann ekki rísa og hníga og finnur eða heyrir ekki eðlilegan andardrátt andar einstaklingurinn ekki eðlilega.

3 - Hringdu í Neyðarlínuna 112

Hringdu í Neyðarlínuna 112, ef hjartastuðtæki er nærri farðu og náðu í það.

4 - Hjartastuðtæki?

Ef það er einhver annar á staðnum, biddu viðkomandi að sækja hjartastuðtæki.

5 - Endurlífgun

Á meðan þú bíður eftir tækinu eða ef ekkert hjartastuðtæki er tiltækt,skaltu hefja endurlífgun.

Framkvæmdu eftirfarandi: Leggðu þykkhönd annarrar handar á miðjan brjóstkassann.

Leggðu þykkhönd hinnar handarinnar ofan á þá fyrri og læstu fingrunum saman.

Gættu þess að axlirnar séu beint yfir hnoðstaðnum og handleggirnir beinir.

Endurlífgun

Hnoðaðu 30 sinnum

Þrýstu brjóstkassanum um 5 til 6 sentímetra niður með báðum handleggjum.

Reyndu að hnoða stöðugt, tvisvar sinnum á sekúndu.

Blástu 2 sinnum

Haltu áfram að hnoða 30 sinnum á brjóstkassann og blása 2 sinnum til skiptis.

Eða

Hjartahnoð

Ef þú getur ekki eða vilt ekki blása skaltu eingöngu beita hjartahnoði.

Ef þú blæst í einstaklinginn, ekki gleyma að halla höfðinu aftur og opna vel öndunarveginn. Fylgstu vel með því að brjóstkassinn lyftist.

Haltu endurlífguninni áfram þar til einstaklingurinn fer að anda eðlilega, sérhæft björgunarfólk eða hjartastuðtæki kemur á staðinn.

Endurlífgun fullorðinna

Fyrstu mínúturnar eftir hjartastopp getur verið að einstaklingur andi, grunnt og slitrótt.

Þetta eru ósjálfráðar hreyfingar og ekki má rugla þeim saman við eðlilega öndun.

Download

Next video

Sikana - Skyndihjálp: Börn: Endurlífgun
En poursuivant votre navigation sur ce site, vous acceptez l'utilisation de cookies pour vous proposer des services adaptés à vos centre d'intérêts. En savoir + OK